Guðrún Ögmundsdóttir:
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að þakka hæstv. dómsmrh. fyrir framsögu hennar í þessu máli. Hér er verið að stíga ákveðin skref fram á við til þess að auka rétt útlendinga og ég tala nú ekki um maka Íslendinga þannig að nú loksins sjáum við að þeir geti fjárfest hér í fasteignum.
Þetta er strax til bóta. Eins og hæstv. dómsmrh. nefndi þá á þetta ekki við um fyrirtæki. En eflaust munu samt sem áður verða umræður því tengdar í hv. allshn. Ég sé ekki fram á annað en þetta sé hið allra besta mál.