Stjórn fiskveiða

Þriðjudaginn 16. október 2001, kl. 15:42:03 (585)

2001-10-16 15:42:03# 127. lþ. 11.5 fundur 3. mál: #A stjórn fiskveiða# (úthlutun aflahlutdeilda o.fl.) frv., SI (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 11. fundur, 127. lþ.

[15:42]

Sigríður Ingvarsdóttir (andsvar):

Herra forseti. Landssamband ísl. útvegsmanna framreiknaði fyrir skömmu hvernig hið hóflega veiðigjald kæmi niður á einstökum byggðarlögum. Mér þætti gaman að sjá þær tölur eða öllu heldur skelfilegt ef framreiknað yrði hvernig sú fyrningarleið sem hér um ræðir kæmi niður á einstökum byggðarlögum.