Endurgreiðsla virðisaukaskatts

Miðvikudaginn 17. október 2001, kl. 15:11:11 (686)

2001-10-17 15:11:11# 127. lþ. 13.6 fundur 84. mál: #A endurgreiðsla virðisaukaskatts# fsp. (til munnl.) frá fjmrh., fjmrh. (svar)
[prenta uppsett í dálka] 13. fundur, 127. lþ.

[15:11]

Fjármálaráðherra (Geir H. Haarde):

Herra forseti. Hv. þm. spyr hvað líði hinni sérstöku úttekt sem þingmaðurinn vék hér að og sérstök þál. var samþykkt um á sl. vori. Um þetta er það að segja að þessi úttekt er hafin. Henni lýkur vonandi fljótlega og þá verður unnt að greina efnislega frá niðurstöðum hennar.