Málefni aldraðra

Fimmtudaginn 18. október 2001, kl. 14:04:08 (752)

2001-10-18 14:04:08# 127. lþ. 15.3 fundur 162. mál: #A málefni aldraðra# (gjald í Framkvæmdasjóð aldraðra) frv., heilbrrh. (flutningsræða)
[prenta uppsett í dálka] 15. fundur, 127. lþ.

[14:04]

Heilbrigðisráðherra (Jón Kristjánsson):

Herra forseti. Ég mæli fyrir frv. til laga um breytingu á lögum um málefni aldraðra, nr. 125/1999. Í frv. er gert ráð fyrir að gjald úr Framkvæmdasjóði aldraðra verði hækkað úr 4.578 kr. í 4.826 kr. eða um 248 kr.

Úr Framkvæmdasjóði aldraðra eru m.a. veittir styrkir til byggingar þjónustumiðstöðva, dagvista og stofnana fyrir aldraða og til nauðsynlegra breytinga og endurbóta á húsnæði sem notað er til þjónustu við aldraða. Auk þess styrkir sjóðurinn rekstur á stofnanaþjónustu fyrir aldraða. Samstarfsnefnd um málefni aldraðra stjórnar sjóðnum og gerir árlega tillögu til heilbr.- og trmrh. um úthlutun úr sjóðnum til verkefna.

Framkvæmdasjóður aldraðra fær tekjur af sérstöku gjaldi sem skattstjórar leggja á þá sem skattskyldir eru samkvæmt lögum um tekjuskatt og eignarskatt. Þeir sem greiða gjaldið eru einstaklingar á aldrinum 16--69 ára. Undanþegin gjaldinu eru börn innan 16 ára aldurs og þeir sem eru 70 ára og eldri í lok tekjuárs. Einnig eru þeir undanþegnir gjaldinu sem hafa tekjuskattsstofn sem verður 781.579 kr. eða lægri á tekjuárinu 2001. Jafnframt skulu skattstjórar fella niður gjaldið af þeim elli- og örorkulífeyrisþegum undir 70 ára aldri sem dveljast á dvalar- eða hjúkrunarheimilum.

Gjald í Framkvæmdasjóð aldraðra er með frv. hækkað um 5,41% og miðast hækkunin að hálfu við breytingu á byggingarvísitölu og að hálfu við breytingu á neysluvísitölu.

Virðulegi forseti. Þetta frv. er í raun eitt af fylgifrumvörpum fjárlagafrv. og ég tel brýnt að frv. hljóti afgreiðslu á haustþingi þannig að það fylgi fjárlagafrv. við afgreiðslu þess. Ég leyfi mér því, virðulegi forseti, að leggja til að frv. verði vísað til hv. heilbr.- og trn. og 2. umr.