Átak til að lengja ferðaþjónustutímann

Fimmtudaginn 18. október 2001, kl. 19:05:00 (816)

2001-10-18 19:05:00# 127. lþ. 15.9 fundur 139. mál: #A átak til að lengja ferðaþjónustutímann# þál., Forseti GÁS
[prenta uppsett í dálka] 15. fundur, 127. lþ.

[19:05]

Forseti (Guðmundur Árni Stefánsson):

Forseti vill geta þess að ráðgert var að þessi fundur stæði eigi lengur en til klukkan sjö. Nú er klukkan orðin sjö og eru þrír hv. þm. á mælendaskrá í 9. dagskrármáli. Forseti mun freista þess að ljúka umræðu um málið þannig að það megi fara til nefndar og er því ekki gert ráð fyrir að mikið fleiri bætast á mælendaskrá í þessu máli.