Jón Bjarnason (andsvar):
Herra forseti. Það má vel vera rétt hjá hv. þm. að hann hafi ekki notað --- hann ætti að vita það best sjálfur --- orðið öfgamaður. Hafi ég vitnað til þess og hann ekki sagt það þá biðst ég afsökunar á því þó að mér hafi fundist umræðan leiða út í þá skilgreiningu. Ég biðst afsökunar á því ef svo er.
Eftir stendur að hv. þm. vitnaði einmitt í og taldi upp þá sem skipuðu stjórn Náttúruverndarráðs samkvæmt lögum og hafði ekkert sérlega virðuleg orð um það hlutverk umhvrh. að hann skipaði það. Hann sagði: ,,ef skipa mætti kalla``, eitthvað í þá veruna. Það tel ég mig muna nokkurn veginn alveg rétt. Sú virðulega nálgun að skipaninni og þeirra orða sem eftir fóru lá því alveg ljós fyrir að mínu mati í orðfæri hv. þm. Þar eru upp taldir fulltrúar að tillögu Náttúrufræðistofnunar Íslands, Háskóla Íslands, Bændasamtaka Íslands og Ferðamálaráðs. Ég tel að allir þessir aðilar hafi fulla sæmd og geti skipað þetta ráð.
Eftir stendur, herra forseti, að meginrökin fyrir því að leggja Náttúruverndarráð niður eru, eins og hér hefur svo rækilega komið fram og það einnig hjá hv. þm. Halldóri Blöndal, að ráðið hafi með ályktunum sínum og ráðum ekki verið stjórnvöldum þénugt.