Jón Bjarnason (andsvar):
Herra forseti. Hv. þm. Halldór Blöndal dregur hér nýtt atriði inn í umræðuna, þ.e. að einstakir stjórnarmenn eða aðilar að Náttúruverndarráði hafi ekki verið heilir í umfjöllun sinni og ráðgjöf. Ég þekki það ekki. (HBl: Ég sagði þetta ekki svona. Það er betra að hafa gott minni ef maður er að vitna í það sem aðrir hafa sagt.) Herra forseti. Ég held að hv. þm. geti illa skotist undan því að gera sér grein fyrir því sem hann sagði. Hann fylgdi því síðan eftir í andsvari hve mikilvægt það væri fyrir ráð og nefndir sem væru til ráðgjafar við stjórn stofnana eða fyrirtækja, að fullur trúnaður og heilindi væri þar í milli til þess að það gæti gengið upp. Ég tel mig vitna nokkuð orðrétt til þeirra orða hv. þm.
Ég vil líka benda á, herra forseti, að hv. þm. er að vísa til ákveðins umræðuefnis, þ.e. nauðsynjar þess að leggja niður Náttúruverndarráð. Þá verður að skoða þessi ummæli í því ljósi. Ég bara ítreka það, herra forseti, að ég mótmæli þeim rökum fyrir því að leggja Náttúruverndarráð niður að það veiti ekki ráð sín af fullum heilindum til ráðherra eða ríkisstjórnar. Ég mótmæli því að það sé haft sem meginrök fyrir þessari lagabreytingu.