Lúðvík Bergvinsson (andsvar):
Virðulegi forseti. Ég hlýddi á bróðurpartinn af ræðu hv. þm. og verð að segja alveg eins og er að þetta er með betri ræðum sem hafa verið fluttar hér í dag.
Ég vil taka undir með hv. þm. að líklega hefur allt mistekist í þessu blessaða kvótakerfi ef undan er skilið það að meðferð á fiski er heldur betri nú en áður. Annað held ég að megi segja almennt að hafi mistekist og það er alveg sama hvar borið er niður. Landsbyggðin hefur aldrei staðið hallari fæti. Útgerðin stendur ekki vel, stofnarnir standa ekki vel og það frv. sem við ræðum nú er alveg til að taka steininn úr.
Hvað erum við í raun og veru að ræða hérna? Við erum að ræða niðurstöður kjarasamninga, kjarasamninga smábátamanna og LÍÚ við hæstv. sjútvrh. Og hver er niðurstaðan? Það á að láta þá hafa smávegis. Þannig er fyrir okkur komið í sjávarútveginum að umræður um þessa hluti eiga sér stað með þeim hætti að verið er að fara í kjarasamninga við sjútvrh. til að láta einn hópinn fá eitthvað og kerfið býður þannig upp á að það er tekið af öðrum.
En ég spyr hv. þm. eftir að hafa hlýtt á þessa ræðu þar sem hann fann nánast kerfinu allt til foráttu og ég get tekið undir bróðupartinn af því: Hvar stendur hann í þessu máli? Hvar stendur hv. þm. í því máli sem við ræðum hér og snýst um þessa kjarasamninga, þessa litlu niðurstöðu sem hæstv. sjútvrh. kom með? Hvar stendur hv. þm. í þessu máli? Styður hann þetta eða hver er afstaða hans? Ef hann styður síðan þessa niðurstöðu eftir þessa fínu ræðu, virðulegi forseti, þá finnst mér talsverður skuggi vera farinn að falla á hana.