Sverrir Hermannsson (andsvar):
Herra forseti. Mér var ljóst hver var meginniðurstaðan og meginreglan í sambandi við nýtingu auðlinda Íslands. En hvernig í ósköpunum má það vera að ekki er gerður neinn fyrirvari eða upplýst um hvernig þessi undantekning sem gerð er er til orðin? Nú liggur þetta fyrir.
Ég hef haldið því fram opinberlega allan tímann að þeir hefðu aldrei hugsað sér að hverfa í einu né neinu sem skipti máli frá þeirri fiskveiðistjórn sem þeir hafa komið upp. Og hvað skeður svo? Ég sé það og hef reyndar sagt frá því áður að það eru vinir hæstv. forsrh. í nefndinni sem gera honum þann greiða að taka inn þessa aðferð sem þeir allan tímann ætla að viðhafa, og þeim sem lesa skýrsluna er ekki gerð grein fyrir því hvernig þetta er tilkomið. Það er ekki einu sinni minnst á að þetta sé nein undantekning. Það er bara tekið upp sem önnur reglan varðandi sjávarútveginn, þessi ósköp sem við höfðum fyrir augum.
En héðan í frá vitum við þetta og ég er þakklátur nefndarmönnunum og hv. þingmönnum sem það hafa upplýst. Hér verður ekkert lengur farið í grafgötur með hvernig þetta er í pottinn búið. Eins blasir alls staðar við í umræðunum að rökþrotin eru slík að það hefur ekkert farið fram hjá mér að hæstv. forseti vor, sem er því miður fjarstaddur, hefur helst viljað skera niður með öllum hætti málfrelsi manna. Við fengum með einhverjum eftirgangsmunum í fyrra að ræða um skýrslu auðlindanefndar og framsögumaðurinn, sá sem hér stendur, 12 mínútur. Þannig er allri þessari afgreiðslu háttað.