Árni Steinar Jóhannsson (andsvar):
Virðulegi forseti. Ég vil nota þetta tækifæri í andsvari til að lýsa ánægju minni með þá lýsingu sem hv. þm. hefur gefið á störfum í endurskoðunarnefndinni. Ég held að hann hafi lýst því í einu og öllu alveg á réttan hátt og ég vil enn fremur lýsa því yfir að ég taldi alveg eins og hann að á síðustu metrunum væri að koma grundvöllur fyrir því að menn gætu nálgast varðandi þau sjónarmið sem uppi voru, en ég er jafnframt þeirrar skoðunar eftir á að hyggja að skilaboð hafi komið ofan frá um að hætta slíkum tilraunum. Ég vil spyrja hv. þm. Kristin H. Gunnarsson hvort hann sé ekki sammála mér í þeirri lýsingu að vinnunni á síðustu metrunum sem mönnum sýndist að væri að skila árangri hefði hreinlega verið ákveðið að hætta og fara yfir í gamla farið sem síðan hefur orðið niðurstaða meiri hlutans.