Kristinn H. Gunnarsson (andsvar):
Herra forseti. Ég held að það sé alveg augljóst mál hverjum þeim sem vill sjá að sú niðurstaða sem varð, niðurstaða meiri hluta nefndarinnar, er enginn grundvöllur sátta í málinu vegna þess að það er ekki tekið á aðalágreiningsefnunum. Og á meðan menn þæfast áfram á þeirri vegferð eru menn einfaldlega að efna til ófriðar við þau sjónarmið sem andstæð eru málinu. Menn mega svo sem velja sér það og hafa allan þann rétt að velja sér þá leið en sú leið mun ekki skila neinni niðurstöðu sem friður verður um.
Ég vil svara hv. þm. þannig að ef hæstv. sjútvrh. hefði beitt sér í því máli undir lok starfsnefndarinnar, þegar við vorum að ræða tiltekna hugmynd í nefndinni, þá trúi ég því að náðst hefði sameiginleg niðurstaða á grundvelli hennar.