Guðjón A. Kristjánsson (andsvar):
Herra forseti. Ég heyrði að þingmaðurinn sagði að sumir vildu frjálsar veiðar. Ég hugsa nú að bæði ég og hv. þm. Pétur H. Blöndal mundum í hjarta okkar vilja frjálsar veiðar. En ég hugsa hins vegar að við séum báðir nokkuð sannfærðir um að þeim yrði illa við komið í framtíðinni eins og málum hefur verið háttað að undanförnu og alla vega ekki nema menn taki upp verulega breytt skipulag. Reyndar hygg ég að frjálsar veiðar muni ekki verða í þeim skilningi í framtíðinni. Þeim muni verða stýrt hvað svo sem við viljum.
Hann vék að 5% reglunni. Ég er honum ...
(Forseti (ÁSJ): Hv. þm.)
Hv. þm. Pétur H. Blöndal vék að 5% reglunni í 4. gr. og ég er honum sammála um að setja þar ákveðna krónutölu sem er þetta lág. Ég held að það sé kannski ekki nægur hvati til þess að koma með þetta að landi, alla vega ef menn mega ekki koma með nema 5%. Þó þeir lendi í því eina veiðiferð að veiða fisk sem þeir eiga ekki heimildir fyrir þá held ég að þetta sé ekki rétt uppsetning og ég tek undir að þetta þurfi að vera öðruvísi útfært. Ég mundi líka vilja spyrja hv. þm. hvort ekki væri hægt að hugsa sér að hluti af hvatanum fyrir því að koma með aflann að landi væri t.d. sá að hluta af verðmætinu yrði varið í Lífeyrissjóði sjómanna til þess að koma í veg fyrir að kjör eldri sjómanna verði enn frekar skert en verið hefur á undanförnum árum og stefnir í.