Soffía Gísladóttir (andsvar):
Herra forseti. Ég notaði orðið undarlegt vegna þess að ég skildi ekki muninn á þessari áætlun sem flutningsmenn þáltill. koma með og síðan því átaki sem þeir ætla að setja fram. Mér fannst það ekki nógu skýrt. Eins tel ég að mjög gagnlegar upplýsingar séu til um þetta félagslega forvarnastarf. Því vildi ég leggja áherslu á það að ég vildi frekar sjá fjármunum varið til þessa starfs beint en ekki til þess að kosta ákveðnum fjármunum í einhverja úttekt þegar við getum í rauninni tekið þessar upplýsingar saman. Þær koma t.d. fram í þessari greinargerð nú þegar.
Kannski eitt enn. Það er í sambandi við þetta átak sem verið er að tala um. Ég tel að þetta ætti að vera stöðugt forvarnastarf. Við ættum kannski að leggja til þessar 200 millj. árlega næstu árin en ekki næstu fimm árin. Þetta eru miklir fjármunir og kannski ekki möguleiki að setja allt þetta í það, en setja þarf meira fjármagn í forvarnastarfið beint.