Reglur um notkun á vél Flugmálastjórnar

Fimmtudaginn 08. nóvember 2001, kl. 14:05:13 (1364)

2001-11-08 14:05:13# 127. lþ. 25.94 fundur 114#B reglur um notkun á vél Flugmálastjórnar# (umræður utan dagskrár), félmrh. (ber af sér sakir)
[prenta uppsett í dálka] 25. fundur, 127. lþ.

[14:05]

Félagsmálaráðherra (Páll Pétursson):

Virðulegur forseti. Það mátti skilja á orðum hv. þm. Gísla S. Einarssonar að einhver launung hefði verið hjá ráðuneytum um notkun þessarar vélar. Það er ekki í því tilfelli sem ég ber ábyrgð á. Af hálfu félmrn. var skýrt skilmerkilega frá þeim notum sem ráðuneytisstjóri og deildarstjóri höfðu af þessari vél.