Málefni Raufarhafnar

Mánudaginn 12. nóvember 2001, kl. 15:19:37 (1406)

2001-11-12 15:19:37# 127. lþ. 26.2 fundur 123#B málefni Raufarhafnar# (óundirbúin fsp.), forsrh.
[prenta uppsett í dálka] 26. fundur, 127. lþ.

[15:19]

Forsætisráðherra (Davíð Oddsson):

Herra forseti. Mér er ekki kunnugt um að ákvarðanir Landsbankans hafi verið kynntar á vettvangi ríkisstjórnarinnar. Þó er frá því að segja að ég var þar ekki á fundum í síðustu viku og þori þess vegna ekki að fullyrða um það nema ég beri mig saman við þá sem þar sátu. Ég veit ekki til þess að það hafi verið gert af hálfu Landsbankans en ég hef fyrirvara á því af því að ég var ekki á ríkisstjórnarfundum á þriðjudag og föstudag.