Guðjón Guðmundsson:
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svarið. Ég er ekki sammála því að þær reglur séu mjög strangar sem eru í gildi. Þær eru þannig að slíkir flutningar eru bannaðir frá föstudagskvöldi til miðnættis á sunnudag eða eitthvað í þeim dúr og það getur ekki talist mjög strangt því að það er gríðarleg umferð um þessi göng alla virka daga vikunnar. Þarna fara hundruð manna um göngin t.d. á hverjum morgni til skóla og vinnu og til skamms tíma var verið að flytja gas um göngin á sama tíma. Gasflutningarnir hættu ekki vegna strangra reglna heldur vegna þess að flutningsaðilinn ákvað sjálfur að hætta þeim þegar það hafði aftur og aftur verið gagnrýnt á Alþingi að slíkir flutningar færu fram. Reglnanna vegna gæti hann hafið þá flutninga aftur á morgun.
Málið er í nefnd og upplýsingar vantar, segir hæstv. ráðherra, reglur OECD og annað slíkt. Allt er það góðra gjalda vert en ég tel reyndar að við eigum að setja reglur af eigin hyggjuviti og þekkingu á aðstæðum en ekki að bíða eftir upplýsingum frá einhverjum erlendum aðilum. Ef betri upplýsingar koma þaðan, þá lögum við okkar reglur að þeim upplýsingum. En við eigum sjálf að hafa nægt hyggjuvit til að ljúka þessu og ég hvet hæstv. ráðherra til að ljúka þessum málum sem allra fyrst og hafa reglurnar sem allra strangastar.