Ásta R. Jóhannesdóttir:
Herra forseti. Ég kveð mér hljóðs um störf þingsins að nýju vegna svars hæstv. landbrh. við fyrirspurn minni um sölu ríkisjarða en í svari hæstv. ráðherra koma fram mjög alvarlegar rangfærslur. Í svarinu neitar hæstv. ráðherra að gefa upp verð og kaupendur ríkisjarða. Hann taldi sig ekki hafa heimild til þess. Í skriflegu svari vísar hæstv. ráðherra til þess að alþingismenn hafi sama rétt til upplýsinga og almenningur samkvæmt upplýsingalögum og áfram er vísað til skýrslu um starfsskilyrði stjórnvalda sem lögð var fyrir Alþingi á 125. löggjafarþingi. Þar segir að sá skilningur sé staðfestur í skýrslunni.
Þar sem ég gat ekki fundið þessa staðfestingu í skýrslunni fékk ég lögfræðinga í nefndadeild Alþingis til að finna þeim skilningi stað. Ég hef fengið bréf frá nefndadeildinni þar sem segir, með leyfi forseta:
,,Við skoðun er ekki unnt að finna framangreindum skilningi stað. Þvert á móti segir í kafla 3.9.7 í skýrslunni, sem ber yfirskriftina ,,Réttur alþingismanna til aðgangs að upplýsingum um opinber málefni``:
,,Í dönskum rétti er á því byggt að aðgangur þingmanna að upplýsingum ráðist ekki af upplýsingalögunum. Á hinn bóginn er þó augljóst að þingmenn eiga a.m.k. ávallt rétt á upplýsingum sem opnar eru almenningi samkvæmt upplýsingalögum.
Leggja verður til grundvallar að fyrrnefndur réttur alþingismanna til aðgangs að upplýsingum um opinber málefni ráðist ekki af upplýsingalögum heldur byggist hann á sjálfstæðri heimild sem er að finna í 54. gr. stjórnarskrárinnar.``
Þetta er um skriflega svarið. Aftur á móti vísar ráðherra til mannréttinda og réttar einstaklingsins þannig að leynt fari kaupverð á ríkisjörðum og telur að honum sé ekki heimilt að upplýsa um verðið. Það er ákaflega sérkennilegt þegar megnið af þeim upplýsingum sem ég spyr um og ráðherra vill ekki svara mér liggja fyrir í ríkisreikningi sem eru opinber gögn. Ég spyr, herra forseti: Hvað er hér á ferðinni? Hér fer hæstv. ráðherra tvívegis með rangt mál í svari og allar þessar upplýsingar liggja fyrir í A-hluta ríkisreiknings. Ég spyr um skýringar frá hæstv. ráðherra.