Fyrirspyrjandi (Árni R. Árnason):
Herra forseti. Þeir sem starfrækja og veita heilbrigðisþjónustu utan opinberra stofnana eru býsna margir og hafa í vetur oft komið til umræðu hér á hinu háa Alþingi. Mér þykir því forvitnilegt og fróðleiksvert að fá upplýsingar hæstv. heilbrrh. um umfang þessarar starfsemi. Ég spyr því:
Hve stórum hluta heilbrigðisþjónustunnar allrar og helstu greina hennar, svo sem heilsugæslu að meðtöldum heimilislækningum, almennra rannsókna á sjúkdómum og sjúklingum, læknisaðgerða, hjúkrunar, meðferðar við sjúkdómum, endurhæfingar og hjúkrunar og umönnunar sjúkra aldraðra, er sinnt af öðrum en opinberum aðilum, miðað við ráðstöfun fjárveitinga á fjárlögum að meðtöldum fjárveitingum til Tryggingastofnunar?