Sigríður Jóhannesdóttir:
Hæstv. forseti. Í tengslum við þá umræðu sem hér fer fram um verknám, sérstaklega á landsbyggðinni, langar mig að benda á að í bréfi sem skólastjórar við framhaldsskóla hafa skrifað hv. menntmn. hefur komið fram að eitt af því sem gerir verknám mjög erfitt í framkvæmd úti á landi er hvernig reiknilíkanið, sem framhaldsskólar verða núna að fara eftir og þeim er úthlutað fé eftir, er uppbyggt. Það tekur ekkert tillit til þess hve erfitt er að reka litla hópa eins og oft vill verða í verknámi á landsbyggðinni og halda sig innan ramma fjárlaga. Ég held að þetta sé atriði sem verður að endurskoða.