Lúðvík Bergvinsson:
Virðulegi forseti. Það er einu sinni þannig að í nánast öllum málum geta þingmenn komið upp og talað. Þetta tiltekna umræðuform, hálftímaumræðuform, hefur verið skipulagt þannig að talsmenn flokkanna geti komið fram og gert grein fyrir helstu sjónarmiðum, kannski meginstraumum eða meginsjónarmiðum í flokkunum. Það er dálítið grátbroslegt að menn skuli koma upp og væla undan því tiltekna formi.
Hv. þm. getur annars komið upp í öllum málum. Ég vil bara nota tækifærið úr því að ég stend hér og er að ræða um þetta, að ég sakna þess mjög oft, í mjög mörgum og stórum málum, að fulltrúar Sjálfstfl. taki þátt í umræðunni. Ég vildi sjá þá í miklu fleiri málum en þeir taka þátt í þó að það eigi ekki við um þennan tiltekna hv. þm.
Ég vil almennt nota þetta tækifæri til að hvetja hv. þingmenn Sjálfstfl. til að taka þátt í umræðum á hinu háa Alþingi.