Kolbrún Halldórsdóttir (andsvar):
Herra forseti. Enn trúi ég ekki mínum eigin eyrum, að hv. þm. skuli ekki hafa getað gerst maður að meiri og beðist afsökunar á orðavali sínu þrátt fyrir einhverja máttlausa útskýringu í andsvari við hv. þm. Steingrím J. Sigfússon áðan. Hv. þm. kallaði þingmenn stjórnarandstöðunnar talibana og ég hef hér, herra forseti, skrifaða ræðuna hans frá því áðan og ég vil fá að vitna í hana því ég krefst þess að hv. þm. biðji okkur afsökunar sem hér höfum orðið sár við þá framkomu sem við höfum þurft að þola af hendi þingmannsins. Hv. þm. sagði að hann teldi fáheyrt með stjórnmálaflokkum að þeir legðust svona gegn hagsmunum þjóðar sinnar eins og þeir hafa gert í þessu tilfelli.
,,Ég veit ekki um nein önnur stjórnmálasamtök en talibana í Afganistan sem hafa lagst gegn því að einhverjar verulegar aðgerðir og leiðréttingar yrðu gerðar á hagsmunum þjóðar sinnar.``
Þetta sagði hv. þm. Manni ber að biðja afsökunar á ummælum af þessu tagi. Og ef ekki, þá hefur hv. þm. Kristján Pálsson sett mjög niður hér úr þessum ræðustóli. Það er slæmt til þess að vita að þetta skuli vera vitnisburðurinn sem fer um þingmanninn í Alþingistíðindi og ber honum vitni til framtíðar.