Steingrímur J. Sigfússon (andsvar):
Herra forseti. Mér finnst miklu betra fyrir hv. þm. Ísólf Gylfa Pálmason að segja það berum orðum ef hann telur að ég hafi verið mjög hallur undir sovétkommúnismann og ég hafi verið aðdáandi stjórnarfarsins í Austur-Evrópu. Þá hvet ég hv. þm. til að koma hingað í ræðustólinn og segja það. Það er vandræðalegt að heyra hv. þm. koma hingað og fara eins og köttur í kringum heitan graut um þessa pólitísku ættfræði, láta að því liggja að ég sé gamall stalíniskur kommi, laumukommi og ættfræðin sé eitthvað í þá veru. Ég er ekki feiminn við að gangast við pólitískum skoðunum mínum og hef aldrei verið.
Hitt er rangt hjá hv. þm. --- hann ræður svo alveg hvort hann tekur nokkurt mark á því --- að ég hafi verið einhver aðdáandi stjórnarfarsins í Sovétríkjunum sálugu eða þess sem gerðist í því flokkseinræðisharðstjórnarkerfi sem þar var við lýði og átti fátt skylt með raunverulegum sósíalisma eða eins og ég sé hann fyrir mér. En ég nenni satt að segja ekki að ræða við hv. þm. um þetta. Þetta er langt fyrir utan efnið og satt best að segja fyrir neðan beltið hjá hv. þm. að blanda því inn í þessa umræðu.
Varðandi það að hv. þm. segir hér, sem mér þykir gott, að við eigum að leggja okkar af mörkum til þess að draga úr losun, við eigum að reyna að efla almenningssamgöngur og ástunda orkusparnað o.s.frv., þá er gaman og gott að heyra þetta. Mér þykir vænt um að hv. þm. Framsfl. vilji þannig að Ísland leggi sitt af mörkum þó í litlu sé. Það hefur auðvitað ekki mikla vigt hnattrænt þó okkur takist að draga eitthvað lítillega úr einkabílisma, spara orku á flotanum eða eitthvað því um líkt. En þetta er spurning um siðferðislega grundvallarafstöðu og ég er sammála því. Við eigum að gera þetta.
En af hverju, hv. þm., á það þá ekki að gilda líka þegar kemur að álverum og stóriðju? Er ekki alveg jafnmikilvægt að Ísland taki siðferðislega afstöðu og nálgist málið út frá sama hugarfari þegar kemur að uppbyggingu orkufrekar stóriðju eins og í almennu atvinnulífi okkar, að við viljum leggja okkar af mörkum þó í litlu sé?