2001-11-19 19:57:37# 127. lþ. 31.9 fundur 287. mál: #A niðurstaða 7. aðildarríkjaþings Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar# skýrsl, KolH (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 31. fundur, 127. lþ.

[19:57]

Kolbrún Halldórsdóttir (andsvar):

Nei, herra forseti. Ég tel það ekki til hagsbóta. Ég hef eytt tveimur 15 mínútna ræðum í það í dag að útskýra hvers vegna, svo að ég geri það ekki frekar. En ég tel það ekki til hagsbóta fyrir Íslendinga að hafa samið á þessum nótum vegna þess að ég tel það ekki vera til hagsbóta fyrir lífríki okkar, fyrir náttúru okkar, fyrir sjónarmið okkar og fyrir framtíðarsýn okkar að hlaða hér niður álverum í tugatali. Ég tel það ekki til hagsbóta fyrir okkur.