Lúðvík Bergvinsson (andsvar):
Virðulegi forseti. Ekki veitir af að fleiri komi til þess verkefnis að hjálpa Sjálfstfl. við að draga úr þenslu ríkisins, því að hann er nú búinn á sex ára stjórnartíð að setja Íslandsmet sem vonandi verður seint eða aldrei slegið.
En mig langar aðeins til að spyrja hæstv. ráðherra vegna þess að ég játa það að ég botnaði óskaplega lítið í þessari ræðu sem hann flutti hérna, alveg óskaplega lítið. Ráða mátti af orðum hans að hér hafi allt verið í molum undanfarin 100 ár á meðan við höfum verið að keyra þessa blessuðu bíla þangað til þessar skatttekjur voru settar á. Þá loksins kemst öryggið í lag. Hæstv. ráðherra verður ekki skilinn öðruvísi en svo að þetta sé algerlega nauðsynlegt til að bjarga öryggi sem hlýtur þá að segja okkur það einnig að hér hafi allt verið í molum undanfarin 100 ár því að hér hafa bílar meira og minna verið allan þann tíma. Þetta er því dálítið undarleg yfirlýsing og kannski ekki ástæða til að ræða hana mikið frekar.
Í athugasemdum fjmrn. segir, og ég ætla að lesa það upp, með leyfi forseta:
,,Samtals er því gert ráð fyrir að tekjur af leyfisveitingum verði u.þ.b. 11 millj. kr. á ári, og vega þær upp á móti kostnaði við veitingu leyfanna.``
Lög sem gengu í gegn að hluta til í vor og annað frv. sem liggur fyrir, þ.e. varðandi það frv. sem hér er og síðan um leigubílana, gera ráð fyrir að flytja verkefni yfir til Vegagerðarinnar. Kostnaðurinn við þetta tiltekna frv., ekki leigubílana, er þá 11 millj. kr. og samanlagt gerir þetta því u.þ.b. 30 millj. kr., verkefni sem eru flutt til Vegagerðarinnar. Því spyr ég enn og aftur: Af hverju sjáum við þess ekki stað í fjárlögunum með lækkun á framlagi til aðalskrifstofu, að verið sé að flytja jafnvíðfeðm og umfangsmikil verkefni frá aðalskrifstofu til Vegagerðarinnar? Af hverju sjáum við þess ekki stað í stað þess að sjá hækkanir?