Samgönguráðherra (Sturla Böðvarsson) (andsvar):
Herra forseti. Ég hef farið yfir þetta með hv. þm. Hann verður þá að lesa það í þingtíðindum hafi hann ekki hlustað nægilega vel hvernig fjármálahlið þessa máls er.
Hins vegar vil ég vekja athygli hans á því sem er mjög mikilvægt einnig af því að hv. þm. er löglærður, að það er mjög mikilvægur partur af stjórnsýslunni að ráðuneyti sem þarf að úrskurða í deilumálum sé ekki að sinna stjórnsýslunni sjálft og síðan þurfi ráðherrann þegar ráðuneytið hefur unnið mál, (Gripið fram í.) að fara að úrskurða. Þess vegna teljum við það eðlilegt, hv. þm., að undirstofnun, þ.e. Vegagerðin, sjái um framkvæmdina þannig að þeir sem þurfa að sæta eftirlitsverki Vegagerðarinnar eigi þess kost að leita til úrskurðar stjórnvaldsins sem er þá ráðuneytið. Þetta er grundvallaratriðið í stjórnsýslunni, sem við erum að reyna að færa til betri vegar, sem lögfræðingar í það minnsta, svo sem hv. þm. og formaður þingflokks Samfylkingarinnar, ættu að vera mér sammála um og standa með mér í.