Veiðieftirlitsgjald

Þriðjudaginn 20. nóvember 2001, kl. 15:49:07 (1801)

2001-11-20 15:49:07# 127. lþ. 32.4 fundur 288. mál: #A veiðieftirlitsgjald# (hækkun gjalds) frv. 125/2001, sjútvrh.
[prenta uppsett í dálka] 32. fundur, 127. lþ.

[15:49]

Sjávarútvegsráðherra (Árni M. Mathiesen):

Herra forseti. Án þess að ég hafi athugað það sérstaklega geri ég ráð fyrir að langan, keilan og skötuselurinn séu komin inn í úthlutaðan heildarfjölda þorskígilda og þá jafnframt að kolmunnaálagningin falli undir þann hluta sem lagður er á landaðan afla, eins og nefnt var.