Fyrirspyrjandi (Össur Skarphéðinsson):
Herra forseti. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem ég varpa fram fyrirspurn af þessu tagi til hæstv. umhvrh. Ég er mikill áhugamaður um vernd votlendis og ég og minn flokkur höfum á umliðnum árum lagt fram nokkuð mörg þingmál sem lúta að því, m.a. tvö á þessu þingi.
Ástæðan fyrir þessum áhuga mínum á votlendi er sú að gríðarlega mikill fjöldi lífvera á heimkynni sín í votlendi og til marks um það nefni ég það að um það bil 80% íslenskra fugla nýtir votlendi af einhverju tagi yfir varptíma, ýmist til fæðuöflunar eða til varps.
Við Íslendingar höfum ákveðnum skyldum að gegna gagnvart votlendi vegna þess að við erum aðilar að Ramsar-sáttmálanum og með Ramsar-samþykktinni er Íslendingum lagðar margvíslegar skyldur á herðar sem tengjast vernd votlendis, þar á meðal að móta stefnu um varðveislu, skráningu og nýtingu votlendis. Allt er þetta í skötulíki, herra forseti, enn þá hjá okkur Íslendingum. Ég er ekkert að gera hæstv. umhvrh. sérstaklega ábyrgan fyrir því en þetta er mál sem við þurfum að taka sérstaklega á. Segja má að fullkominn skortur á skilningi á þessu efni hafi verið þangað til nóbelsskáldið okkar, Halldór Laxness á Gljúfrasteini, skrifaði ákaflega merkilega grein í Morgunblaðið á gamlársdag 1970. Hernaðurinn gegn landinu hét hún og var síðar birt í bókinni Yfirskyggðir staðir og það var þá sem í fyrsta skipti var varpað fram þeirri hugmynd að Íslendingar færu að moka aftur ofan í skurði til þess að endurheimta votlendið. Við höfum gert ákveðnar tilraunir til þess en allt of litlar að mínu viti.
Herra forseti. Röskun votlendis hefur haft gríðarleg áhrif á útbreiðslu íslenskra fugla. Sérstaklega er hægt að halda því fram um staði eins og Suðurland þar sem búið er að raska 98% af öllu upprunalegu votlendi og útrýma ákaflega merkum jarðmyndunum eins og hallamýrum. Þetta hefur leitt til þess, herra forseti, að til eru dæmi um fugla sem hafa horfið sem varpfuglar af Íslandi og það er alveg ljóst að nokkrar tegundir eiga undir högg að sækja.
Þess vegna vildi ég, herra forseti, varpa þessari fyrirspurn fram til hæstv. umhvrh.:
Hvaða fuglategundir hafa samkvæmt rannsóknum Náttúrufræðistofnunar og annarrar stofnunar undir henni horfið úr röðum íslenskra varpfugla að einhverju eða öllu leyti vegna framræslu votlendis, eða eiga í vök að verjast af þeim sökum?
Herra forseti. Mér þætti mikilvægt að það kæmi fram hvort og hvaða fuglategundir hafa algerlega horfið úr tilteknum landshlutum. Þær upplýsingar liggja fyrir og hæstv. umhvrh. hlýtur að geta upplýst okkur um þetta.