Dómsmálaráðherra (Sólveig Pétursdóttir):
Herra forseti. Út af orðum hv. þm. vil ég taka það fram að það má ekki skilja orð mín svo að ég hafi verið leidd í einhverja gildru með þessum upplýsingum frá hv. þm. Ég bendi hins vegar á að það er afskaplega eðlilegt, þegar um er að ræða tilvik eins og hann nefnir og svo langan tíma, að slíku atriði sé komið til lögreglustjórans í Reykjavík og leitað eftir upplýsingum þar. Ráðherra sem hér er að svara fyrirspurn frá hv. þm. í nokkrum liðum leitar auðvitað eftir upplýsingum frá embættinu og svarar í samræmi við þær upplýsingar sem berast.