Fyrirspyrjandi (Svanfríður Jónasdóttir):
Herra forseti. Þessi fyrirspurn er tengd þeirri sem síðast var á dagskrá að því leyti að það er fullkomin ástæða til að velta því fyrir sér, þegar tegundir eru settar í kvóta eða teknar úr kvóta, hversu mikla fjármuni menn eru að véla um með þeirri einu ákvörðun. Það má spyrja: Hvað þýddi það fyrir útgerð sem hafði steinbítskvóta að hann var tekinn út úr kvóta? Þá má á móti fullyrða að menn hafi fengið býsna rýmilegar aðstæður þegar tegund var sett í kvóta vegna þess að framsalið er fyrir hendi.
Herra forseti. Ýmsir hafa farið hamförum gegn þeirri aðferð að innkalla kvóta smám saman, að fara svokallaða fyrningarleið og finnst slíkt ósvinna og stórárás á grundvelli útgerðar í landinu og eru menn þó margir hverjir býsna hógværir í þeim tölum sem þeir hafa nefnt varðandi fyrningar. Það er sem sé talið raska grundvellinum og koma í veg fyrir að menn geti stundað útgerð með þeim stöðugleika sem talinn er þurfa að vera fyrir hendi. Þess vegna er það athyglisvert sem komið hefur fram, að ráðherra telur sig geta kippt heilu tegundunum út, fyrnt heila tegund á einu bretti, þ.e. 100%. Fyrningin er ekki um 3% eða 5% á ári eða 10%, nei 100% á einu ári, án tillits til þess hvað Hafrannsóknastofnun segir, að því er virðist án þess að þurfa að svara fyrir það faglega. Mér finnast það satt að segja útúrsnúningar hjá hæstv. ráðherra þegar hann hengir málið á tilteknar aðstæður í stað þess að reyna að svara almennt. Vissulega ríður á að við gerum okkur glögga grein fyrir þeim almennu leikreglum sem eru fyrir hendi.
Það er ljóst að sjávarauðlindin er takmörkuð auðlind og þess vegna fá allar kvótasettar tegundir tiltekinn verðmiða. Þessi verðmiði er breytilegur eins og við vitum og menn láta það gjarnan koma fram í máli sínu, þegar þeir eru að tala um sjávarútvegsmál, hvert verðið er ýmist á varanlegum aflaheimildum eða kvóta innan ársins. En vegna þessara æfinga með steinbítinn í sumar lagði ég fram eftirfarandi fyrirspurn til hæstv. ráðherra, til að kalla það fram hvaða áhrif þær hefðu haft á virði þess kvóta:
,,Hvert var áætlað markaðsverðmæti steinbítskvótans, aflamark innan ársins og varanleg aflahlutdeild, fiskveiðiárið 2000/2001 og hvernig þróaðist verðið innan fiskveiðiársins?``