Gísli S. Einarsson (um fundarstjórn):
Virðulegur forseti. Við umræðu um frv. til fjáraukalaga nú fyrir skömmu gerði ég þáv. starfandi forseta grein fyrir því að við óskuðum eindregið eftir því að hæstv. ráðherrar ríkisstjórnarinnar yrðu viðstaddir 2. umr. fjárlaga. Ég beindi því til forseta að hann kæmi þessu á framfæri og sæi til þess að þessi boð bærust til hæstv. ráðherra. Aðeins tveir ráðherrar höfðu orð á því við mig um að þeir þyrftu að bregða sér frá augnablik, þ.e. hæstv. heilbrrh. og hæstv. félmrh. Við gerðum kröfu um að ráðherrar yrðu við og hlustuðu á talsmenn flokkanna úr fjárln. flytja mál sitt við 2. umr. Það er lágmarksvirðing sem hæstv. ráðherrar geta sýnt þinginu og þingmönnum.
Ég spyr því virðulegan forseta: Hvernig standa þessi mál? Var hæstv. ráðherrum gert viðvart um þetta? Á hvern hátt hyggjast forsetar fylgja þessari athugasemd eftir eða hyggjast þeir ekki gera það?
Ég læt þess getið hér að þegar ég flyt ræðu mína mun ég óska eftir að viðkomandi ráðherrar verði hér við til að hlusta á þær athugasemdir sem ég hef fram að færa. Ég mun nafngreina þá og boða hér með að það mun taka nokkurn tíma að flytja mál mitt. Ég óska eftir því að forseti geri ráðherrum almennt viðvart um að ég mun spyrja þá um ákveðna liði.
Ég virði það að hæstv. fjmrh. situr hér og hlustar og fylgist með umræðunni. Ég reikna með að hann geri eins og venjulega, taki saman og svari því sem honum finnst svaravert af þeim athugasemdum sem fjárlaganefndarmenn hafa fram að færa.
Virðulegur forseti. Ég ítreka þessa athugasemd. Ég tel að það sé skylda að hæstv. ráðherrar séu viðstaddir hér og hlusti á talsmenn flokkanna.