Steingrímur J. Sigfússon (andsvar):
Herra forseti. Ég þakka hæstv. utanrrh. fyrir að koma til fundarins og taka þátt í umræðunni. Það var ekki bara til að ræða þessi mál heldur er líka gott að hafa fulltrúa annars stjórnarflokksins hér, m.a. til að ræða aðstæður í kringum þessa fjárlagaumræðu. Þess vegna var nærveru hans óskað eða látin í ljósi sú skoðun að það væri æskilegt ef hann og reyndar helst sem flestir hæstv. ráðherrar gætu verið hér viðstaddir.
Allt og sumt sem sagt er um sendiráð í Japan í nál. minni hluta utanrmn. er að það sé mjög dýrt, og þegar í ljós kom hversu geysilega háa tölu um er að ræða hefði e.t.v. verið ástæða til --- eins og það er nákvæmlega orðað --- að endurskoða þá ákvörðun eða leita leiða til að ná þessum kostnaði niður, t.d. með því að fara í samstarf við aðrar Norðurlandaþjóðir, ef slíkt hefði reynst mögulegt, eða annað í þeim dúr. Er það mikið sagt, og er það tilefni til mikillar viðkvæmni, þó að sagt sé að þetta sé mikill kostnaður, borið saman t.d. við rekstur annarra sendiráða, og hvort mögulegt hefði verið að endurmeta það þegar fyrir lá hversu dýrt þetta væri? Reyndar er rétt að fram komi að kostnaðurinn er ekki allur, eins og iðulega hefur heyrst haldið fram opinberlega, fólginn í kaupum á húsnæði heldur reyndust, samkvæmt sundurliðun sem utanrmn. fékk, endurbætur á þessu húsnæði mjög dýrar og ýmis búnaður í það. Pakkinn sem slíkur er þarna mjög dýr.
Það er hins vegar athyglisvert hversu viðkvæmur hæstv. utanrrh. er gagnvart því að þetta sé rætt, og fellur jafnvel í þá gryfju að fara að gera mönnum algjörlega að ósekju upp skoðanir eins og þær að þeir vilji ekki að við gætum hagsmuna okkar á erlendri grund eða séu beinlínis á móti því að þetta sendiráð hafi verið opnað. Ekkert slíkt stendur hér í nál. þessa minni hluta og ekkert slíkt hefur ræðumaður sagt.
Varðandi NATO-fundinn telur hæstv. utanrrh. að þessum peningum sé vel varið, talaði jafnvel um landkynningu í því sambandi og hagsmuni ferðaþjónustuaðila. Ég leyfi mér að fullyrða það og tala af nokkurri reynslu að ef ferðaþjónustuaðilar á Íslandi fengju 350 milljónir mundu þeir ekki nota þær svona.