Utanríkisráðherra (Halldór Ásgrímsson):
Herra forseti. Fleiri þverpólitískar nefndir hafa verið skipaðar í þessu þjóðfélagi og má þar nefna nefnd um fjármagnstekjuskatt sem skilaði ágætu áliti. Ég veit ekki betur en stjórnarandstaðan hafi síðan hlaupið frá því áliti. Það er hins vegar ekki nema sjálfsagt að ræða öll þessi mál á Alþingi og ber að gera það. Það er náttúrlega æðsti samráðsvettvangur þjóðarinnar.
Stjórnarandstaðan getur á næstunni tekið afstöðu til örvunaraðgerða í atvinnulífinu. Skattalagabreytingar að því er varðar fyrirtækin eru dæmi um örvunaraðgerð. Menn mega ekki bara líta á samdráttinn. Það ber líka að líta til þess sem gera á í framtíðinni. Það er ætlun ríkisstjórnarinnar að fara út í stóriðjuframkvæmdir. Það er ætlun ríkisstjórnarinnar að fara út í virkjunarframkvæmdir sem stjórnarandstaðan getur að sjálfsögðu tekið afstöðu til á Alþingi og vonandi styður stjórnarandstaðan allar þessar aðgerðir til að örva atvinnulífið fyrst hún er fullkomlega sannfærð um að þetta horfi allt saman illa.
Það hefur ekki verið þannig í umræðunni á undanförnum árum að stjórnarandstaðan hafi talið að mikið þyrfti að gera til uppbyggingar í þessu samfélagi. Það hefur ekki borið mikið á því. En nú reynir á stjórnarandstöðuna á næstunni, í að taka afstöðu til mála sem varða efnahagslífið. Það reynir á okkur öll í sambandi við fjárlagafrv. Það er lykilatriði í sambandi við efnahagsmál þannig að þessi mál eru að sjálfsögðu öll hér uppi á borði.
Áfram verður haft gott samráð við aðila vinnumarkaðarins en að sjálfsögðu verður ríkisstjórnin og meiri hluti Alþingis að bera mestu ábyrgðina á því hvernig mál standa og taka af skarið í málum þar sem ekki næst full samstaða. Þannig hefur það alltaf verið og verður áfram.
Ég endurtek að góðu samstarfi við aðila vinnumarkaðarins verður haldið áfram. Það er mikil þörf á því og meiri þörf á því en oft áður. Við það verður staðið.