Viðbragðstími lögreglu

Miðvikudaginn 28. nóvember 2001, kl. 14:01:17 (2103)

2001-11-28 14:01:17# 127. lþ. 38.91 fundur 169#B viðbragðstími lögreglu# (aths. um störf þingsins), SAÞ
[prenta uppsett í dálka] 38. fundur, 127. lþ.

[14:01]

Sigríður A. Þórðardóttir:

Herra forseti. Hæstv. dómsmrh. hefur brugðist stórmannlega við þeim fyrirspurnum sem var beint til hennar í síðustu viku og því að hún var sökuð um að hafa nánast vísvitandi farið með rangar upplýsingar. Mér finnst það gott dæmi um mjög góð vinnubrögð af hálfu dómsmrh., þ.e. að bregðast við eins og hún gerði. Einnig má ljóst vera að ekkert tilefni var til að ráðast óviðurkvæmilega að hæstv. dómsmrh. eins og gert var í síðustu viku og vakti sérstaka athygli í þinginu.