Rannveig Guðmundsdóttir (andsvar):
Herra forseti. Það er ágætt að vanda sig við orðaval í þessum ræðustól. Staðreyndin er hins vegar sú að ég held að t.d. minn flokkur hafi almennt stutt opnun sendiráða. Við meinum það þegar við segjum að við viljum sókn á erlenda markaði og styðja þannig við útflutningsfyrirtæki. Okkur er alvara með því.
En ég undirstrika að það er ríkisstjórn á hverjum tíma sem ákveður með hvaða hætti hún hefur þessi mál. Eins og ég sagði þá má vel vera að besta niðurstaðan hafi verið að kaupa húsnæði. Ég legg ekki mat á það.
Ég get líka tekið undir þau orð sem hæstv. utanrrh. lét falla í einhverju viðtali að auðvitað væri hvenær sem er hægt að selja húsnæðið, losa þannig fjármagn og leigja í staðinn, þ.e. ef einhverjum finnst það betra. Það sem ég er að undirstrika er að ákvörðun um sendiráð, ákvörðun um þróun mála er eitt, útfærsla er annað, útfærslan sem liggur hjá hæstv. ríkisstjórn. Og hafi verið gagnrýni hér hefur hún trúlega aðallega verið vegna fjármagnskostnaðar og hvort binda hefði átt fjármagn þarna eða annars staðar, hún hefur ekki komið frá okkur að því er ég best veit. Og mér finnst mikilvægt að menn átti sig á þessu og ræði raunhæft um hlutina, auk þess sem það er mikilvægt að stjórnarandstaða á hverjum tíma ræði málin, málin sem hún hefur ekki aðkomu að, og veiti þar með aðhald.