Rannveig Guðmundsdóttir (andsvar):
Herra forseti. Já, ég tek undir það. Mér finnst frekar líklegt að Baldur Guðlaugsson hafi leitað eftir því við hæstv. fjmrh. að það væri í lagi að fara með þessa ræðu. Ræðan er efnisleg og mjög góð. Hún dregur fram kosti og galla og hún dregur ekkert undan. En ég viðurkenni alveg að þegar ég var búin að lesa þessa ræðu hugsaði ég: Ætli Davíð hafi vitað þetta?
En, herra forseti, um afstöðu Norðmanna. Ég styð hæstv. utanrrh. í tilraun hans til að taka upp EES-samninginn, hann getur alveg treyst því. Ég tel mjög mikilvægt að við reynum að fá eins öflugan EES-samning og hugsast getur meðan við erum í þeirri stöðu að við ákveðum að standa utan Evrópusambandsins. Og ég get alveg ímyndað mér að það sé munur á matinu hjá Norðmönnum og okkur á því hvað skipti máli í þessu sambandi. Ráðherrann hefur sjálfur farið yfir það að þeir eru miklu betur staddir varðandi markaðina af því að þeir hafa verið í mikilli sókn á markaði og hafa mjög mikla markaðshlutdeild í Póllandi eins og ég tók fram áðan. Þeir kæra sig ekkert um, þessi stóra þjóð í samanburði við okkur, að fara að greiða inn í þróunarsjóð.
En ég dreg þetta fram til að staðreyndir liggi á borðinu, til að það sé ljóst að þótt við séum að basla með EES-samninginn eru líkurnar ekkert miklar um stuðning frá Noregi. En ég veit líka að maður stendur í samningaviðræðum og þegar samningur liggur fyrir metur maður hvort hann sé nægilega góður til að taka honum eða ekki. Og það mat skal ég svo sannarlega leggja með ráðherranum ef ég fæ tækifæri til.