Tómas Ingi Olrich (andsvar):
Herra forseti. Það kann að vera að Vinstri grænir hafi einkarétt á því að skilja samþykktir öryggisráðsins öðruvísi en allir aðrir. Það er nú samt svo að þegar öyggisráðið fjallaði um þennan atburð þá minnti það sérstaklega á þann viðurkennda rétt einstaklinga og samfélaga til sjálfsvarnar sem er skráður í stofnsáttmála Sameinuðu þjóðanna. Til hvers er verið að vitna í hann ef hann á ekki við í þessu tilfelli? Dettur hv. þm. í hug að öryggisráð Sameinuðu þjóðanna sé að vitna þarna í stofnskrá sína út í bláinn án þess að það mál komi þeim atburði við sem þarna er verið að ræða um?