Reikningsskil sveitarfélaga

Mánudaginn 03. desember 2001, kl. 15:51:00 (2302)

2001-12-03 15:51:00# 127. lþ. 41.1 fundur 182#B reikningsskil sveitarfélaga# (óundirbúin fsp.), GÁS
[prenta uppsett í dálka] 41. fundur, 127. lþ.

[15:51]

Guðmundur Árni Stefánsson:

Herra forseti. Vegna lokaorða hæstv. ráðherra þá er nú reynslan ólygnust í þessum efnum. Það nægir að vísa til þess dæmis sem ég hef farið hér orðum um.

En, herra forseti, það tekur því ekki að vera að standa í þessu orðaskaki við hæstv. ráðherra. Hann er náttúrlega röklaus með öllu í þessu máli og ég mun auðvitað grípa til þess ráðs seinna í dag að láta dreifa frumvarpi þar sem þessum málum er komið í skikk. Hann er greinilega ófær um það sjálfur.