Rannveig Guðmundsdóttir:
Herra forseti. Þá höfum við það skýrt og skorinort. Flóttamenn með flóttamannastatus fá hér þjónustu og eiga hér rétt. Aðrir eiga ekki rétt. Ráðuneytin hafa ekki rætt saman.
Í dag fáum við að heyra að fimm börn hafi komið hingað með þremur fjölskyldum í september og í desember hafa þau ekki fengið skólagöngu, fjölskyldurnar eiga engan rétt, það er Rauði krossinn sem heldur þeim uppi.
Ég verð að segja að ég hélt að ég byggi í öðruvísi þjóðfélagi. Ég hélt að við létum okkur varða hagsmuni barna, allra barna hvernig svo sem þau ber að okkar garði. Það er ekki svo. Ég er glöð að heyra það að félmrn. ætlar að verða við ósk dómsmrn. um fund þegar og ef beðið verður um hann.
En satt best að segja, herra forseti, þá ætlast ég til þess að ráðherra fari yfir það hvernig ólíkir hagsmunir þessa fólks snúa að ráðuneytum þeirra, ekki síst barnanna, og tryggi þeim úrbætur.