Lúðvík Bergvinsson (andsvar):
Virðulegi forseti. Það er óhjákvæmilegt að halda aðeins áfram þeirri umræðu sem hér hefur farið fram reyndar í allan dag.
(Forseti (GuðjG): Forseti vekur athygli hv. þm. á að hann er í andsvari og heldur ekki áfram að ræða um það sem hefur skeð hér í dag. Hann er í andsvari við hv. 4. þm. Austurl. og ef hann ætlar ekki í andsvar, þá biður forseti hann ...)
Virðulegi forseti. Hv. þm. er það vel kunnugt að hann er í andsvari.
(Forseti (GuðjG): Gott.)
Virðulegi forseti. Í þeirri umræðu sem hér hefur farið fram og kom inn á ræðu hv. 4. þm. Austurl. þá hefur komið fram að ráðuneytið treystir sér ekki til að láta af hendi þessar upplýsingar af þeim sökum að tilteknir embættismenn hafi heitið þagnarskyldu. Því spyr ég hv. þm.: Hefur það komið fram í fjárln. að menn treysti sér ekki til að afhenda þessar upplýsingar af því að embættismenn hafi heitið þagnarskyldu? Enn fremur: Hefur það verið skýrt út fyrir fjárlaganefndarmönnum hvernig á því stendur að tilteknir embættismenn geti bundið þingið þagnareiði?