Frsm. meiri hluta fjárln. (Ólafur Örn Haraldsson) (andsvar):
Virðulegi forseti. Ég taldi sérstaka ástæðu til að leita eftir svörum við spurningum á borð við þær sem hv. þm. Einar Már Sigurðarson setur hér fram. Eftir þeim upplýsingum sem ég fékk í gær þá er andvirði jarðarinnar Straums varið til Skógræktar ríkisins, enda þótt það sé sundurliðað með þeim hætti sem fram kemur í brtt. meiri hlutans hér í nál. og fylgigögnum.
Þau verkefni sem fara þar til skólanna, þar með talið Garðyrkjuskólans, er mér tjáð að séu vegna Skógræktar ríkisins og þar með hafi verið fylgt þeim fyrirmælum sem komu fram, að mér er sagt, í gjafabréfi og til fullnustu orðum hv. formanns nefndarinnar á síðasta þingi.