Fjármálaráðherra (Geir H. Haarde) (andsvar):
Herra forseti. Ja, nú er stórt spurt. Ég verð að viðurkenna að ég man það nú ekki nákvæmlega en ætli við í ríkisstjórninni verðum ekki að taka það á okkur eins og ýmislegt fleira sem gert er. (ÖS: Heldurðu að það geti hafa verið hæstv. fjmrh.?) Það má vel vera. Mér verða á mistök eins og fleirum. Hvað sem því líður þá er þetta textinn eins og hann er í fjárlögunum í dag.
Eftir á að hyggja er það mjög óskynsamleg hugmynd og vitleysisleg, eins og þingmaðurinn sagði, og sennilega jafnvel heimskuleg, eins og ég sagði áðan, að láta sér detta í hug að ráðstafa þessu andvirði þannig að taka andvirði eignar með þessum hætti og ætla að ráðstafa í rekstrarlán án þess að það sé nánar skilgreint. En hugmyndin kom ekki frá hv. þm. Össuri Skarphéðinssyni, svo mikið er víst.