Kristján L. Möller:
Herra forseti. Sveitarstjórn Skagafjarðar hefur samþykkt að selja Rafveitu Sauðárkróks og náð samkomulagi við Rafmagnsveitur ríkisins um kaupin. Aðilar málsins hafa með öðrum orðum náð samkomulagi um þessi viðskipti.
Við þingmenn Samfylkingarinnar virðum og styðjum sjálfsákvörðunarrétt sveitarfélaga. Sú brtt. sem hér er verið að greiða atkvæði um og hv. þm. Jón Bjarnason er 1. flm. að, er um að Alþingi hafni því að veita Rarik heimild til kaupa á Rafveitu Sauðárkróks. Þessu erum við ósammála og greiðum því atkvæði gegn tillögunni.
Svo aðeins út af umfjöllun sem hér hefur verið um ósamkomulag í Skagafirði. Ég held að það sé einungis vegna þess að sjálfstæðismenn í Skagafirði eru í fýlu yfir því að hafa dottið út úr meiri hluta sveitarstjórnar Skagafjarðar.