Fjáraukalög 2001

Miðvikudaginn 05. desember 2001, kl. 14:28:23 (2512)

2001-12-05 14:28:23# 127. lþ. 43.1 fundur 128. mál: #A fjáraukalög 2001# frv. 127/2001, JB (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 43. fundur, 127. lþ.

[14:28]

Jón Bjarnason:

Herra forseti. Hér er verið að greiða atkvæði um að verja allt að 1 milljarði kr. til að greiða úr bráðum fjárhagsvanda sveitarfélaganna. Mörg sveitarfélög á landsbyggðinni búa nú við háar skuldir og mikla greiðsluerfiðleika m.a. vegna skulda við félagslega íbúðakerfið og aukins kostnaðar við einsetningu grunnskólans og yfirfærslu hans til sveitarfélaganna. Þau telja mörg á sig hallað í samskiptum við ríkisvaldið. Hvor tveggja þessara málaflokka bíður úrlausnar á landsvísu.

Þessi mál og önnur er varða verka- og tekjuskiptingu ríkis og sveitarfélaga eru óútkljáð en þau verður að leysa með nýju fjármagni til sveitarfélaganna. Óviðunandi er að einstök sveitarfélög séu knúin til að selja bestu eignir sínar og þjónustustofnanir til að leysa úr bráðum greiðsluvanda. Fremur ber að einhenda sér í að leysa þennan fjárhagsvanda sveitarfélaganna á landsvísu. Hér er lagt til að verja allt að 1 milljarði kr., sem fyrsta skrefi, í að leysa þennan vanda án þess að taka af sveitarfélögunum eignir í staðinn.