Guðmundur Árni Stefánsson:
Herra forseti. Það er að sönnu rétt að vandi er mikill hjá ýmsum sveitarfélögum vítt og breitt um landið. Ástæður þess eru margvíslegar. Byggðastefna núverandi ríkisstjórnar hefur brugðist algerlega og tekjuskipting ríkis og sveitarfélaga er ósanngjörn. Það var best sýnt hér í langri og ítarlegri umræðu fyrir réttu ári síðan um tekjustofna sveitarfélaga og er þeirri umræðu langt í frá lokið.
Ég hef hins vegar efasemdir um þá nálgun sem hér er lögð til um að verja 1 milljarði kr. úr ríkissjóði til þess að dreifa á hin einstöku sveitarfélög samkvæmt reglum sem hæstv. félmrh. setur. Ég hef í fyrsta lagi ekki mikla trú á því að gera félmrh. að skammta úr hnefa hingað og þangað hringinn í kringum landið og nálgun þessa máls er ekki skynsamleg þó að ég efist ekki um heilan hug flutningsmanna. Ég get ekki stutt málið og sit því hjá.