Frsm. meiri hluta efh.- og viðskn. (Vilhjálmur Egilsson) (andsvar):
Virðulegi forseti. Ég vek bara athygli á því að hér er þingmaður Samfylkingarinnar að ræða um skattamál og hér frammi liggur nál. frá 1. minni hluta þar sem segir:
,,Í samræmi við það leggur 1. minni hluti til að á árinu 2003 verði stiginn frekari áfangi í lækkun á almennum tekjusköttum einstaklinga og hann verði fjármagnaður með gjaldi sem tekið verði fyrir nýtingu fiskstofna.``
Þetta er innlegg frá 1. minni hluta í þetta mál og mér finnst bara eðlilegt að hv. þm. Samfylkingarinnar komi og skýri þetta út: Hvað ætlar hann að flytja marga milljarða með þessu frá landsbyggðinni til höfuðborgarsvæðisins? Hvað ætlar hann að flytja marga milljónatugi eða hundruð milljóna frá Vestmannaeyjum til höfuðborgarsvæðisins í gegnum síkt fyrirkomulag?
(Forseti (GuðjG): Forseti minnir á að leyfi forseta þarf til að lesa upp prentað mál.)