Jóhanna Sigurðardóttir:
Herra forseti. Þessi brtt. tengist þeim breytingum sem við viljum gera varðandi tillögur ríkisstjórnarinnar um hátekjuskatt, þ.e. að hækka frítekjumark í hátekjuskatti. Við viljum fresta því um tvö ár.
Hér er ekki um eðlilega tillögu eða rétta að ræða í því umhverfi sem við erum. Þessi tillaga hefur það í för með sér að fólk sem er með 2 millj. í tekjuskattsstofn fær 6.600 kr. skattalækkun samkvæmt tillögum ríkisstjórnarinnar en þeir sem eru með 8 millj. í tekjuskattsstofn fá 104 þús. í skattalækkun. Við teljum ekki tímabært núna að taka í það 600 millj. að lækka skatta á hátekjufólki á meðan verið er að skera niður í velferðarkerfinu. Þessu viljum við fresta í tvö ár þannig að breytingin taki gildi árið 2004.