Tekjuskattur og eignarskattur o.fl.

Laugardaginn 08. desember 2001, kl. 15:04:58 (2840)

2001-12-08 15:04:58# 127. lþ. 47.2 fundur 114. mál: #A tekjuskattur og eignarskattur o.fl.# (skatthlutföll, verðbólguleiðréttingar, einstaklingar í atvinnurekstri o.fl.) frv. 133/2001, PHB (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 47. fundur, 127. lþ.

[15:04]

Pétur H. Blöndal:

Herra forseti. Hér er lagt til að fella niður þjóðarbókhlöðuskattinn. Kominn tími til. Það er búið að reisa Þjóðarbókhlöðuna og þá er rétt að skatturinn falli niður.