Tekjuskattur og eignarskattur o.fl.

Laugardaginn 08. desember 2001, kl. 15:07:11 (2842)

2001-12-08 15:07:11# 127. lþ. 47.2 fundur 114. mál: #A tekjuskattur og eignarskattur o.fl.# (skatthlutföll, verðbólguleiðréttingar, einstaklingar í atvinnurekstri o.fl.) frv. 133/2001, forsrh. (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 47. fundur, 127. lþ.

[15:07]

Forsætisráðherra (Davíð Oddsson):

Herra forseti. Í viðtali við talsmann Samfylkingarinnar, Margréti Frímannsdóttur, viku fyrir síðustu kosningar sagðist hún leggja til að tryggingagjald hækkaði um 1%. Við göngum ekki svo langt.