Kristján L. Möller (andsvar):
Virðulegi forseti. Aðeins fyrst um lækkun húshitunarkostnaðar vil ég bara ítreka það sem ég sagði hér áðan vegna þess að við höfum áður tekist á um það í þingsal, ég og hæstv. byggðamálaráðherra, í umræðum bæði utan dagskrár og í fyrirspurnum, að það er enn þá töluvert í land með að lækkun húshitunarkostnaðar nái þeirri lendingu sem hin þverpólitíska nefnd hæstv. forsrh. lagði til. Það vantar töluvert upp á það.
Ég vil aðeins minna hæstv. ráðherra á að niðurgreiðslur eru eingöngu fyrir rafhitun, ekki húshitun. Þrátt fyrir tilmæli iðnn. við fjárlagagerðina í fyrra þar sem bent var á að þetta stæði til bóta hefur ekkert bólað á að þessu yrði breytt. Með öðrum orðum, íbúar t.d. á Akureyri njóta ekki niðurgreiðslu á húshitun vegna þess að þeir eru með hitaveitu. En rafhitun er niðurgreidd. Ég fullyrði og segi enn og aftur að það vantar töluvert á, jafnvel þótt þetta hafi verið aukið jafnmikið og hæstv. ráðherra nefndi hér áðan. Ég hef orð á þessu vegna þess að tillögurnar voru studdar af hæstv. núv. forsrh. héðan úr ræðustól Alþingis þar sem hann lýsti því yfir að hin þverpólitíska nefnd sem náði hinni þverpólitísku niðurstöðu sem kallaðar voru bráðaaðgerðir naut stuðnings hæstv. forsrh.
Ég fagna því að hæstv. ráðherra nefndi hér landsbyggðarskattinn á flutninga. Ég segi bara: Húrra, húrra. Ég hef að vísu ekki heyrt um þessa nefnd sem ríkisstjórnin hefur skipað til að fara í gegnum málin. Ég vil þá leyfa mér að spyrja hæstv. byggðamálaráðherra: Nefndinni er væntanlega ekki eingöngu ætlað að skoða sjóflutningana og hækkun hjá Eimskipum sem var ekki alls fyrir löngu. Á þá nefndin að vinna fyrir ríkisstjórnina að kanna þá miklu hækkun sem hefur orðið á þungaskatti í tíð þessara stjórnarflokka frá 1998 sem er, eins og ég sagði áðan, 45% á lengstu leiðum? Mun þetta verða skoðað líka, hæstv. ráðherra?