Umræða um frv. um ráðstafanir í ríkisfjármálum

Miðvikudaginn 12. desember 2001, kl. 10:15:08 (3023)

2001-12-12 10:15:08# 127. lþ. 50.93 fundur 228#B umræða um frv. um ráðstafanir í ríkisfjármálum# (um fundarstjórn), Forseti HBl
[prenta uppsett í dálka] 50. fundur, 127. lþ.

[10:15]

Forseti (Halldór Blöndal):

Ég vil taka það fram að umræðu um þetta dagskrármál er þegar frestað. Ég vil í öðru lagi taka fram að hv. 1. þm. Norðurl. v. hafði ekki beðið mig að taka málið fyrir fyrst. Í þriðja lagi vil ég taka fram að þingmenn eiga að vera við því búnir að ræða þau mál sem eru á dagskrá. Þann tíma sem ég hef setið á Alþingi hefur það verið svo og verður auðvitað framvegis.